Veldu þínar þrjár vinnustofur hér
að neðan og smelltu svo á kaupa.
Vinnustofur

Áhrifarík notkun sýningargagna

Með örri þróun á tölvuforritum og skjávörpum hafa sýnigögn orðið sveigjanlegri og auðveldari í meðförum. Áhrifarík nýting sýnigagna krefst þess að valin sé rétt tegund þeirra, rétt notkun mynda og lita og skilnings á grunnatriðum við notkun þeirra.
Loka

Árangursríkir fundir

Þessi eining nær yfir þá hæfni í mannlegum samskiptum sem nauðsynleg er til að ná fram samvinnu og jákvæðri niðurstöðu funda. Einnig er farið í gegnum tækni til að hámarka árangur funda, skipulag fyrir fund, stjórnun fundarins og eftirfylgni að loknum fundi.
Loka

Fagleg framkoma

Hrynjandi, svipbrigði og líkamstjáning geta verið allt að 90% af skilboðunum sem fólk meðtekur. Kynningar verða áhrifaríkari ef þú bætir raddsvið, svo sem vörpun, framburð, hraða og tónhæð og líkamstjáningu svo sem stöðu, handahreyfingar, svipbrigði og meðvitaðar hreyfingar.
Loka

Frá þjónustu til sölu

Þú berð ábyrgð á því að koma auga á sölutækifæri þegar þú veitir þjónustu. Hlutverk þitt er að leiðbeina viðskiptavininum á öruggan hátt um kaup á viðbótar þjónustu eða varningi. Með þessu móti gengur þú úr skugga um að viðskiptavinurinn sé ánægður og eykur velgengni fyrirtækis þíns.
Loka

Hafðu hemil á áhyggjum og streitu

Í þessari einingu skoðar þú hvað gerist þegar þú missir stjórn á áhyggjum og streitu og þróar leiðir til að hafa að nýju hemil á þessu ástandi. Þú þróar streitustjórnunarleiðir byggðar á þremur sjónarhornum, líkamlegum, andlegum og félagslegum.
Loka

Hvatning

Því er oft haldið fram að fólk gangi til liðs við fyrirtæki og flýi stjórnendur. Slakir leiðtogar eru gjarnan meginástæða þess að fólk ákveður að skipta um starf. Allir stjórnendur geta haft áhrif á hvatningu starfsmanna með því að skilja mun á viðhaldi og hvatningu, nota áþreifanlegar og óáþreifanlegar leiðir til að veita viðurkenningu og einbeita sér að því að höfða til mikilvægis og samhygðar.
Loka

Jafnvægi vinnu og einkalífs

Jafnvægi vinnu og einkalífs er ofarlega á baugi meðal starfsmanna. Mikið er um það rætt en hvað ert þú að gera til að skapa það jafnvægi sem þú óskar? Hvað er í forgangi? Á hvaða mikilvægu sviðum í lífinu viltu ná meira jafnvægi? Hvernig býrðu til og hrindir í framkvæmd áætlun sem hjálpar þér að ná markmiðum þínum og ásættanlegu jafnvægi?
Loka

Jákvæð áhrif við fyrstu kynni

Upphafspunktur þjónustuferlisins er móttaka viðskiptavinarins, þessi mikilvægu fyrstu augnablik sem gefa tóninn í framtíðar samskiptum. Með því að bjóða viðskiptavininn velkominn á kraftmikinn og fagmannlegan hátt gerir þú ekki aðeins árangursrík samskipti möguleg, heldur líkleg.
Loka

Leiðtogastíll

Til að ná sem mestum árangri, með og í gegnum aðra, verður leiðtoginn að þekkja stíl sinn og tilhneigingar og kunna að meta stíl annarra. Fjölbreytileikinn í samböndum og aðstæðum gerir þá kröfu til okkar að við séum sveigjanlegri í samskiptum við aðra.
Loka

Listin að hefja samræður

Lærðu að hefja samræður við ókunnuga og að halda þeim gangandi á eðlilegan og afslappaðan hátt án þess að fara að tala um veðrið. Mikilvæg viðskiptasambönd þróast oft sem framhald af samtölum sem eiga sér stað á mannamótum hvers konar þar sem fólk gefst tækifæri til þess að tala við þá sem þeir þekkja ekki. Víkkaðu tengslanetið með því að eiga auðvelt með að hefja samræður.
Loka

Markmiðasetning

Farsæld einstaklinga og fyrirtækja gerist ekki af sjálfu sér. Góður árangur er afrakstur góðra ráðagerða. Skrefin sem nauðsynlegt er að taka til að ná tilætluðum árangri eru heldur ekki tekin af sjálfu sér. Þeir sem ná árangri hafa skýrar hugmyndir um stefnu og markmið- hvert þeir eru að fara og hvaða markmiðum þarf að ná til að komast á leiðarenda- og þeir skuldbinda sig til að fylgja ferlinu eftir frá upphafi til enda.
Loka

Mundu nöfn

Að muna nöfn er aðeins angi af lönguninni til að muna eftir fólkinu á bak við nöfnin, en ekki tækifæri til að sýna hversu gott minni okkar er. Við eigum að leggja nöfn annarra á minnið, ekki vegna þess að við erum svo mikilvæg, heldur vegna þess að aðrir eru það
Loka

Samningatækni

Sama hvert hlutverk þitt er innan fyrirtækisins þá er vinnudagur þinn röð samningaviðræðna. Hæfnin til að nota samningatækni þar sem hagur allra er hafður að leiðarljósi getur gert gæfumuninn í þeim samningum sem þú nærð. Hún er jafnframt nauðsynleg til að hafa áhrif á fólk og eiga uppbyggjandi og jákvæð samskipti.
Loka

Samskiptahæfni- myndun tengsla við aðra

Í þessari einingu skoðar þú áhrifin sem beiting samskiptareglna Dale Carnegie, til að byggja upp tengsl og traust, hefur á þróun þína í starfi. Þessar níu reglur mynda grunn að faglegum samskiptum sem einkennast af virðingu og skilningi.
Loka

Sannfærandi kynningar

Margir vanmeta tímann sem þeir leggja í kynningar sem ætlað er að sannfæra. Eitt af markmiðum þessarar einingar er að sýna þátttakendum fram á hve oft þeir eru að sannfæra aðra um að grípa til aðgerða. Hæfni þín til að sannfæra með beinum eða óbeinum hætti getur verið úrslitaþáttur í möguleikum þínum á stjórnunarstöðu, sölu eða öðrum forystustörfum innan fyrirtækisins.
Loka

Tímastjórnun

Tvö lykilatriðin í tímastjórnun eru að skoða í hvað við verjum tímanum og einbeita okkur að því að eyða orku í verkefni sem hafa raunverulegt mikilvægi. Þú getur forðast harðstjórn þess áríðandi með því að leggja mat á verkefnin og beita fimm þaulreyndum tímastjórnunarleiðum
Loka

Tækifærisræður

Margir hræðast mikið að halda ræðu og telja það aðeins vera fyrir þá sem hafa til þess meðfædda hæfileika. Sannleikurinn er hins vegar sá að flestir geta haldið ágæta og jafnvel frábæra ræðu fyrirvaralaust- hrist hana fram úr erminni. Það eru nokkra leiðir til að bæta hæfni þína í að tjá þig reiprennandi þegar þú ert beðinn um að segja nokkur orð.
Loka

Víkkum Tengslanetið

Fljótlegasta leiðin til að víkka út tengslanetið er að tengjast neti einhvers annars. Auk þess að víkka út þitt tengslanet gæti það komið öðrum til góða að tengja þitt tengslanet við þeirra. Með öðrum orðum aðalmálið er ekki hverja þú þekkir, heldur hvern langar að þekkja þig og hver vill þekkja þá sem þú þekkir?
Loka

Þjónustuviðhorf

Grunnur þess að skapa þjónustumenningu innan fyrirtækisins er að skilja væntingar, gera meira en búist er við og vera talsmaður viðskiptavinarins. Að sýna hjálpsemi, einlægan áhuga og virðingu snýr viðskiptavini frá því að vera óvinveittur og tvístígandi í það að sýna stuðning og eldmóð.
Loka
Þú hefur ekki valið neinar vinnustofur á Framakortið þitt.
Þú hefur valið eina vinnustofu af þremur.
Veldu tvær í viðbót og smelltu svo á kaupa.
Þú hefur valið tvær vinnustofu af þremur.
Veldu eina í viðbót og smelltu svo á kaupa.
Framakortið þitt er klárt. Smelltu á kaupa.
Kaupa