Þú sérð þá í viðskiptalífinu, íþróttum, fjölmiðlum, skólastarfi, á sviði menningar og lista eða einfaldlega sem sterka persónuleika. Fjölmargir þeirra hafa sótt Dale Carnegie námskeiðið.
Dale Carnegie námskeiðið, sem fyrst var haldið árið 1912, var upphaflega ræðunámskeið en þróaðist smátt og smátt í námskeið
sem hjálpaði fólki að efla sjálfstraust, bæta mannleg samskipti og vinna á áhyggjum og kvíða.
Á síðustu árum hefur meiri áhersla verið lögð á markmiðasetningu og að efla leiðtogahæfileika fólks og mörg af stærstu fyrirtækjum heims senda starfsfólk reglulega á Dale Carnegie námskeiðið. Nú er Dale Carnegie leiðandi fyrirtæki í þjálfun starfsfólks fyrirtækja í meira en 80 löndum.
Á Íslandi hafa hátt í 20.000 manns hlotið þjálfun hjá Dale Carnegie og vinnum við jafnt með einstaklingum sem fyrirtækjum.
Viðskiptavinir okkar segja m.a. að þjálfunin okkar komi sér vel til að takast á við sífelldar breytingar sem verða á umhverfinu hvort sem er í vinnu eða einkalífi, þeir eigi auðveldara með að viðhalda jákvæðu viðhorfi í krefjandi aðstæðum og að Dale Carnegie þjálfun hjálpi þeim að láta til sín taka og koma hlutunum í verk.